Fylgstu með okkur á Facebook
|
7.06.2018 Bréf sem Jónas skrifaði vini sínum, danska náttúrufræðingnum, Japetus Steenstrup árið 1842 fannst nýlega hjá Árna Gústafssyni frímerkjasafnara sem keypti það vegna póststimpilsins. Handritasafn Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns varðveitir fjölmörg handrit og skjöl Jónasar. Í safninu eru m.a. eiginhandarrit að kvæðum hans, dagbækur, bréf og einkaskjöl. Meðal þess sem varðveitt er af bréfum eru níu bréf frá Steenstrup til Jónasar á árunum 1841-1843 og er stafræn endurgerð bréfanna er aðgengileg á handrit.is. Eitt bréfanna er skrifað á páskadag 1842 og má velta fyrir sér hvort Jónas hafi verið að svara því í bréfi þann 1. maí 1842 en það bréf Jónasar var sýnt á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara árið 2012 (sjá frétt á mbl.is). |
Til fróðleiks
|
![]() |
Sími: 525 5600 Netfang: landsbokasafn (hjá) landsbokasafn.is |