Valstika

Kvæði samin 1833 - 1837

Jan 31, 2020

Móðurást


Spila - Móðurást

Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og ótt;
auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.
 
Hvur er in grátna sem gengur um hjarn,
götunnar leitar, og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fögur í tárum, en mátturinn þverr –
hún orkar ei áfram að halda.
 
„Sonur minn góði! þú sefur í værð,
sérð ei né skilur þá hörmunga stærð
sem að þér ógnar og á dynja fer;
eilífi guðssonur! hjálpaðu mér
saklausa barninu’ að bjarga.
 
Sonur minn blíðasti! sofðu nú rótt;
sofa vil eg líka þá skelfingarnótt;
sofðu! ég hjúkra og hlífi þér vel;
hjúkrar þér móðir, svo grimmasta él
má ekki fjörinu farga.“
 
Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið,
fannburðinn eykur um miðnæturskeið;
snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá
beljandi vindur um hauður og lá
í dimmunni þunglega þýtur.
 
Svo, þegar dagur úr dökkvanum rís,
dauð er hún fundin á kolbláum ís;
snjóhvíta fannblæju lagði’ yfir lík
líknandi vetur – en miskunnarrík
sól móti sveininum lítur.
 
Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar – sem bjó
barninu værðir, og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.
 
Neisti guðs líknsemdar ljómandi skær,
lífinu bestan er unaðinn fær,
móðurást blíðasta! börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð, sem að ávöxtinn gefur.


Samið árið 1837.
Eiginhandarrit er ekki til.
Frumprentun í: Fjölnir 3. ár, 1837.
Einnig prentað í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Grikkur“].

Til baka