Skoða Handrit
Spila – Veðurvísur
Veðurvísur:
- Hart vor
- Hóla bítur hörkubál,
- hrafnar éta gorið,
- tittlingarnir týna sál;
- tarna’ er ljóta vorið!
- Vornæðingur
- Út um móinn enn er hér
- engin gróin hola,
- fífiltóin fölnuð er;
- farðu’ í sjóinn, gola!
- Sunnanvindur
- Sunnanvindur sólu frá
- sveipar linda skýja,
- fannatinda, björgin blá,
- björk og rinda ljómar á.
- Sumarhret
- Nú er sumar í köldu kinn
- – kveð eg á millum vita –
- fyrr má nú vera, faðir minn!
- en flugurnar springi’ af hita.
- Molla
- Veðrið er hvurki vont né gott,
- varla kalt og ekki heitt,
- það er hvurki þurrt né vott,
- það er svo sem ekki neitt.
- Niðaþoka
- Búðaloka úti ein
- er að gera’ á ferðum stans,
- úðaþoka hvergi hrein,
- hún er úr nösum a…
Eiginhandarrit af Veðurvísum er varðveitt á Landsbókasafni (ÍB 13 fol. Handritasafn Bókmenntafélagsins).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847.