Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Efst á Arnarvatnshæðum

Efst á Arnarvatnshæðum

Efst á Arnarvatnshæðum
oft hef ég klári beitt;
þar er allt þakið í vötnum,
þar heitir Réttarvatn eitt.
 
Og undir Norðurásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan Hvannamó.
 
Á öngum stað eg uni
eins vel og þessum mér;
ískaldur Eiríksjökull
veit allt sem talað er hér.

Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Réttarvatn“].