Ég uni mér ekki’ út í Máney,
og er hún þó skemmtileg;
brimaldan ber þar og lemur
bjargið á annan veg.
Og hins vegar ungar hrjóta
úr hreiðrum með nef og stél,
og eggin velta’ öll oní grjótið,
af því hún hristist svo vel.
Ég uni mér ekki’ út í Máney
og á þó að dveljast hér;
því ég er bringubrotinn –
úr bjarginu hrundi að mér.
Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Máney“].