Meðan Hestklettur heldur
og hinum megin er ás,
og bandi bundið á milli,
er brú yfir þessa rás.
Jökulsárnar þær æða
ofan á löndin slétt
og velta’ eins og vitlaus skepna
votan framan um klett.
En Jóni tókst í Tungu
að tölta yfir þessa geil –
bandspotta batt hann þar ufrum,
bóndinn – og kallar það seil.
Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Hestklettur“].