Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Illur lækur eða Heimasetan

Skoða handrit

Lækur rennur í lautu,
liggur og til þín sér:
alltaf eftirleiðis
eg skal gá að mér.
 
Nú fór illa, móðir mín!
mér var það samt ekki að kenna;
sástu litla lækinn renna
græna laut að gamni sín,
breikka þar sem brekkan dvín,
bulla þar og hossa sér!
vertu óhrædd! eftirleiðis
eg skal gá að mér.
 
Lækur gott í lautu á,
leikur undir sólarbrekkum,
faðmar hann á ferli þekkum
fjóla gul og rauð og blá;
einni þeirra eg vil ná
og svo skvettir hann á mig.
Illur lækur! eftirleiðis
eg skal muna þig.
 
Klukkan mín, svo hvít og hrein,
hún er nú öll vot að neðan;
hefðirðu þá heyrt og séð hann,
hvernig ertnin úr honum skein,
ég hef orðið ögn of sein,
og svo skvetti hann á mig.
Illur lækur! eftirleiðis
eg skal muna þig.
 
Lækur fer um lautardrag,
leikur sér að væta meyna
þá hún stígur þar á steina,
það er fallegt háttalag!
Ég fer ekkert út í dag,
uni, móðir góð! hjá þér,
vertu óhrædd! eftirleiðis
eg skal gá að mér.

Samið árið 1844þ
Tvö eiginhandarrit eru til. Annað er varðveitt á Landsbókasafni í handritasafni Jóns Sigurðssonar (JS 129 fol.). Hið síðara er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 b V).
Frumprentun í: Fjölnir 7. ár, 1844.
Einnig prentað í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847.
Aftast í Fjölni 1845 (8. ár) er athugasemd frá Jónasi þar sem hann segir: „Þess ber að geta að smákvæðið ,Illur lækur’ … er kveðið eftir þjóðkunnu spánsku kvæði.“