Þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla,
þar sem hamrahilla
hlær við skini sólar
árla fyrir óttu
enn þá meðan nóttu
grundin góða ber
græn í faðmi sér…
Samið árið 1844-1845.
Eiginhandarrit er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Brot“]
Einnig prentað í: Rit eftir Jónas Hallgrímsson I (Ljóðmæli, smásögur og fleira). Rvík 1929. [Heildarútgáfa á verkum Jónasar í umsjón Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar í 5 bindum sem kom út í Rvík á árunum 1929-37]. [Fyrirsögn: „Í Öxnadal“].