Þrætir þefjahreytir
þorir mér að stora
(káið kannski mái
kúa þar til vara).
Mest eg mér vil treysta,
mundu til þess stundum
faðir minn var, maður!
með í Hólaskóla.
Samið árið 1843-1844.
Eiginhandarrit á lausum miða úr bréfasafni Brynjólfs Péturssonar er geymt í Landsarkivet for Sjælland í Kaupmannahöfn.