Raddir íslenskunnar er verkefni á vegum Borgarbókasafnsins, Stofnunar Árna Magnússonar og Veraldar – húss Vigdísar.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hvetja nemendur og kennara sem og aðra til að gera örmyndband þar sem eftirfarandi spurningum er svarað:
- Af hverju er íslenskan mikilvæg fyrir þig?
- Af hverju ert þú mikilvæg/-ur fyrir íslenskuna?
Myndböndin óskast send á Facebook-síðu dags íslenskrar tungu merkt með myllumerkinu #daguríslenskrartungu.
Myndbönd af Facebook-síðu dags íslenskrar tungu:
- Óðinn Sastre Freysson
- Kristín R. Thorlacius
- Georg Leite
- Kriselle Lou Suson Jónsdóttir
- Jón Gnarr
- Eiríkur Rögnvaldsson