Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Austast fyrir öllu landi

Austast fyrir öllu landi
af einhvurjum veit ég stað,
fjalleyju grænni og góðri;
getið þér hvur muni það?
 
Hún heitir Skrúður, og skýlir
Skrúðsbónda, öldnum hal;
úti fyrir Fáskrúðsfirði
þú finnur það eyjarval.
 
Og hvunær sem eg hugsa
um hrútinn og pækilinn,
mér er sem eg sjái’ hann Gísla
og hann séra Ólaf minn.

Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Skrúðurinn“].