Dönum verður hér allt að ís,
undir eins og dálítið frýs
botnfrosinn belgur hver
kúrir þar sem hann kominn er,
kútveltist og formælir sér.
Samið árið 1845.
Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt á Landsbókasafni (ÍB 13 fol. Handritasafn Bókmenntafélagsins).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Kuldi“].
Einnig prentað í: Rit eftir Jónas Hallgrímsson I (Ljóðmæli, smásögur og fleira). Rvík 1929. [Heildarútgáfa á verkum Jónasar í umsjón Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar í 5 bindum sem kom út í Rvík á árunum 1929-37].
[Fyrirsögn: „Kveifar“].