Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Ólán!

Skoða handrit

Hraparlegt ólán, að á hvítasunnu
einhvur mannskratti segir fyrst í hljóði
– taktu það ekki illa’ upp, karl minn góði! –
ég vilji ólmur eignast hana Gunnu.
 
Svo er nú kannski kallað oní tunnu,
svo fregnin berist fljótt um Víkurstræti;
svo kom upp óp og ys og borgalæti,
rétt eins og þegar barnhýsingar brunnu.
 
En það kom í mig hræðsla og fór að hrína,
hefði það svo sem verið eitthvað …

Samið árið 1845.
Eiginhandarrit er varðveitt á Landsbókasafni (ÍB 13 fol. Handritasafn Bókmenntafélagsins).
Frumprentun í: Rit eftir Jónas Hallgrímsson I (Ljóðmæli, smásögur og fleira). Rvík 1929. [Heildarútgáfa á verkum Jónasar í umsjón Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar í 5 bindum sem kom út í Rvík á árunum 1929-37].