Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Öllum fyrir Ingólfur sér opinn geiminn

Öllum fyrir Ingólfur sér opinn geiminn
þegar teiknin taka heima
tvíræð yfir landið sveima.
 
Robb og Grímur rogast nú með rauða hettu.
Engill verndar, allra gættu
ólærðra í nýrri hættu.
 
Robbur gamall rauna fer að rétta helsi,
yngra teiknið Grímur í galsa
guð og menn er nú að falsa.
 
Ídeuna eða hvað hún annars heitir
svo fjárinn sig ei fyrirliti
fundu þeir í hvurju riti.
 
Þegar skröggur skeggið helga skekur á bringu,
skegglaus enn og skatnar þinga,
skapar hann heillir Íslendinga.
 
Tímarímuteiknin standa tvö í vindum,
sitt yfir hvurju líða landi,
lafa samt á einu bandi.
 
Annað þeirra áðan heyrðum eitthvað grenja:
Botsje, Zara, blessaður grannie,
beljaði annað: Rule Britannie.
 
Meistarar tveir á mesta lofið manna stunda,
annar vegur vit í höndum,
vörur hinn á reisluböndum.

Samið á árunum 1844-1845.
Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Rit eftir Jónas Hallgrímsson I (Ljóðmæli, smásögur og fleira). Rvík 1929. [Heildarútgáfa á verkum Jónasar í umsjón Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar í 5 bindum sem kom út í Rvík á árunum 1929-37].
[Fyrirsögn: „Robb og rímur“].