Bessi á sér berhross,
breiðir snoturt áreiði,
gæsarham, og guðvís
getur fettur rétt setið,
skeiðar svo og lífsleið
lýðum kennir dag þenna;
gumar sem hans gabb nema
grýtast til helvítis.
Samið á árunum 1844-1845.
Eiginhandarrit er varðveitt á Landsbókasafni (ÍB 13 fol. Handritasafn Bókmenntafélagsins).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847.