Við Sogið sat eg í vindi,
sækaldri norðanátt,
og þótti þurrlega seta,
þar var af lifandi fátt.
En sólin reis in sæla,
sveipaði skýjum frá;
upp komu allar skepnur
að una lífinu þá.
Og svo var margt af mýi
– mökk fyrir sólu ber –
að Þórður sortnaði sjálfur
og sópar framan úr sér.
Eiginhandarrit sem er fyrirsagnarlaust er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 a II).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Sogið“].