Dagur íslenskrar tungu 2010

Dagur íslenskrar tungu 2010

Viðburðir á degi íslenskrar tungu 2010

Jónasarvaka í Þjóðmenningarhúsi

Dagskrá um Jónas 1. desember 2010

Leik og söngdagskrá um 
Jónas Hallgrímsson og Tómas Sæmundsson í Þjóðmenningarhúsi

"Ekki skamma mig séra Tumi."

Hópur listamanna sem starfar saman undir heitinu Sagan og fólkið sýnir leik- og söngdagskrá í Þjóðmenningarhúsinu að kvöldi fullveldisdagsins 1. desember kl 20.

Að þessu sinni sýnir hópurinn dagskrá um vinina Jónas Hallgrímsson og Tómas Sæmundsson og kallar uppákomuna Ekki skamma mig séra Tumi. Farið er um víðan völl í heimildasöfnun en mikið byggt á bréfum milli þeirra félaga. Alexandra Chernishova syngur íslensk lög við texta Jónasar en einnig aríur og sönglög víðsvegar að úr Evrópu. Heimsmenningin á heima í þessari dagskrá því Tómas Sæmundsson ferðaðist að loknu námi í Kaupmannahafnarháskóla í tvö ár um Evrópu á miðri 19. öld.

Listamenn:

Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og sögumaður
Alexandra Chernyshova sópransöngkona
Arna Valsdóttir leikari og videolistamaður
Þorlákur Einarsson fer með hlutverk Tómasar Sæmundssonar
Leifur Jónsson fer með hlutverk Jónasar Hallgrímssonar
Jón Símon Gunnarsson fer með hlutverk Espolins og Jóns Helgasonar

 

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2010

Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna í tungumálum, fyrrverandi forseti Íslands og leikhússtjóri

Sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu 2010

Möguleikhúsið

Hljómsveitin Hjálmar

 

Uppfært 19. október 2017