Tónleikar nemenda við Söngskólann í Reykjavík
Framhaldsnemar við Söngskólann í Reykjavík heiðra Jónas Hallgrímsson með því að hafa allir á dagskrá framhaldsprófstónleika sinna sönglög við ljóð Jónasar. Tónleikaröðin hefst 15. nóvember kl. 20:00 með tónleikum Ólafar Ólafsdóttur sóprans og Höllu Marínósdóttur mezzó-sóprans. Kolbrún Sæmundsdóttir leikur á píanó.
Næstu tónleikar eru laugardaginn 17. nóvember kl. 16:00,
sunnudaginn 18. nóvember kl. 16:00 og 20:00 og
mánudaginn 19. nóvember kl. 20:00
Tónleikarnir eru í Tónleikasal Söngskólans, Snorrabraut 54.
Aðgangur er ókeypis.