Valstika

Reykjavíkurárin síðari

Feb 3, 2020

Hér er landið frjótt og frítt


Hér er landið frjótt og frítt,
fjallagrösin efst á tindi,
bogin stráin blakta í vindi,
fjóla í hvammi brosir blítt.
 
Úti fyrir eyjar grænar,
urgar brim í skerjaþröng,
horfa yfir hvalagöng
útigengnar ærnar vænar.
 
Þar er bæði frjótt og frítt,
feitir selir gá til strandar,
hverfa í kaf ef hvuti andar,
þar á æður hreiður hlýtt.

Extra: Hér er landið frjótt og frítt,
Til baka