Valstika

Kvæði samin 1826 - 1832

Jan 17, 2020

Skrevet i N. K.s stambog


Sérattu Snæfells
snjóvga tind
sóluroðinn,
sveiptan þoku,
stjörnuskininn
á strönd bíða,
björgum studdan stá?
 
Fyrr man inn ljósi
af landtöngum
fjallafoldar
fósturjarðar
vörður víkja
en eg, vinur, þér
hjartafólgnum
úr hug sleppi.


Samið á árunum 1829-1832.
Eiginhandarrit er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 b I).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847. [Fyrirsögn: „Minningarblað til N. K.“].

Til baka