Valstika

Kvæði samin 1826 - 1832

Jan 17, 2020

Undir annars nafni


Hví und úfnum
öldubakka
sjónir indælar
seinkar þú að fela,
blíða ljós,
að bylgjuskauti
hnigið hæðum frá!
 
Hve máttu augum
eymdafjöld
láðbyggjenda líta?
Margir ro menn,
þó er mæða fleiri
hvurs und brjósti byrgð.
 
En þú brosir
og burtu snýr
nýt á niðurvegu,
sól sorgfría!
Sofnir ro laukar
þeirs lifðu ljós þitt við.
 
Austur sér eg fljúga
að Esjutindi
hrafn af húsmæni,
hvar um gráföl ský
golu rekin
hefjast himni mót.
 
Bíddu, austankul!
Andvörp mín
máattu of bylgju bera
til innar ungu
athvarfslausu
sem mitt hjarta hlaut.
 
Hví svo, hugarsteinn,
hulinskvíða
svella sútir þér?
Máttkan engil
sá inn mikli faðir
veikum að vörn léði.


Samið á árunum 1826-1828.
Eiginhandarrit er varðveitt í Árnastofnun í handritasafni Konráðs Gíslasonar (KG 31 b I).
Frumprentun í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847.

Til baka