Valstika

Kvæði samin 1833 - 1837

Jan 31, 2020

Meyjargrátur


(Friedrich Schiller)

 

dunar í trjálundi, dimm þjóta ský,
döpur situr smámeyja hvamminum í;
bylgjurnar skella svo ótt, svo ótt,
öndinni varpar á koldimmri nótt
brjóstið af grátekka bifað.
 
„heimur er tómur og hjartað er dautt,
helstirnað brjóstið og löngunarsnautt.
heilaga! kalla mig héðan í frá,
hef eg þess notið sem jarðlífið á,
því eg hefi elskað og lifað.“
 
„tárin að ónýtu falla á fold,
fá hann ei vakið er sefur í mold;
segðu hvað hjartanu huggunar fær
horfinnar ástar er söknuður slær;
guðsmóðir vill þér það veita.“
 
„tárin að ónýtu falli á fold,
fái’ hann ei vakið er sefur í mold.
mjúkasta hjartanu hugganin er
horfinnar ástar er söknuður sker
á harminum hjartað að þreyta.“


Þýtt árið 1836.
Eiginhandarrit er ekki til.
Frumprentanir í tveimur gerðum: Í Fjölni 6. ár, 1843 og í sögunni „Grasaferð“ í Fjölni 9. ár, 1847.
Einnig prentað í: Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. B. Pjetursson og K. Gíslason hafa sjeð um prentunina. Khöfn 1847.

Til baka