Valstika

Kvæði samin 1843-1845

Jan 31, 2020

Andvökusálmur


Svei þér, andvakan arga!
uni þér hvur sem má.
Þú hefir mæðumarga
myrkurstund oss í hjá
búið með böl og þrá,
fjöri og kjark að farga.
Fátt verður þeim til bjarga
sem nóttin níðist á.
 
Myrkrið er manna fjandi,
meiðir það líf og sál,
sídimmt og síþegjandi,
svo sem helvítisbál
gjörfullt með gys og tál.
Veit ég að vondur andi
varla í þessu landi
sveimar um sumarmál.
 
Komdu, dagsljósið dýra,
dimmuna hrektu brott;
komdu, heimsaugað hýra,
helgan sýndu þess vott
að ætíð gjörir gott,
skilninginn minn að skýra,
skepnunni þinni stýra;
ég þoli ekki þetta dott.
 
Guðað er nú á glugga,
góðvinur kominn er
vökumanns hug að hugga;
hristi ég nótt af mér,
uni því eftir fer;
aldrei þarf það að ugga,
aumlegan grímuskugga
ljósið í burtu ber.

Extra: Svei þér, andvakan arga!
Til baka